Ráðsnilld – Við leysum vandamál

Er eitthvað sem heldur rekstrinum aftur?

Rekstur getur farið að þyngjast af mörgum ástæðum. Sala hægir á sér, kostnaður hækkar, samkeppnin harðnar, framlegð versnar eða eitthvað sem áður virkaði vel skilar ekki lengur sama árangri.

Stundum er vandinn augljós. Oftar er hann dreifður yfir marga litla hluti sem saman fara að hafa áhrif á afkomuna.

Þegar þú hefur rekið fyrirtæki lengi er líka auðvelt að festast í daglegum rekstri og þá getur verið erfitt að sjá hvað mætti — og ætti — að gera öðruvísi.

Við hjálpum eigendum og stjórnendum lítilla og meðalstórra fyrirtækja að sjá hvað skiptir máli, finna tækifæri til úrbóta og taka réttu ákvarðanirnar.

Hvar getum við hjálpað?

↗

Tekjuhliðin

Sala, verðlagning, nýir viðskiptavinir, nýir markaðir og nýjar tekjuleiðir.

%

Kostnaðarhliðin

Framlegð, kostnaður, innkaup, vöruframboð og það sem er að éta upp hagnaðinn.

⚙

Rekstrarhliðin

Forgangsröðun, einföldun, flæði, ákvarðanir og að losna við það sem skilar litlu.

Það þarf ekki að breyta öllu — bara því sem skiptir máli.

Þjónustan

01

SPRETTUR

Hraðgreining á rekstrinum með áherslu á það sem hægt er að bæta strax.

Við förum yfir helstu þætti rekstrarins og leitum að augljósum tækifærum í tekjum, kostnaði og rekstri. Þú færð skýra forgangsröðun og tillögur að næstu skrefum.

89.000 kr. + vsk.
02

AÐGERÐ

Fyrir afmarkað vandamál eða tækifæri sem þarf að leysa.

Við tökum eitt mikilvægt viðfangsefni fyrir, greinum hvað skiptir máli, mótum raunhæfa lausn og hjálpum til við að koma henni í framkvæmd.

Verð eftir umfangi.
03

BREYTINGASTJÓRNUN

Þegar vitað er hvað þarf að breyta — en breytingin þarf að komast í gegn.

Við hjálpum stjórnendum að skipuleggja og innleiða stærri breytingar þannig að þær virki í raun og festist í rekstrinum.

Verð eftir umfangi.
04

BAKLAND

Fyrir eigendur sem vilja hafa reyndan aðila til að hugsa upphátt með.

Fundir og aðgangur að utanaðkomandi sjónarhorni þegar þarf að ræða ákvarðanir, hugmyndir, vandamál eða tækifæri — áður en mistök verða dýr.

Verð frá 50.000 kr. + vsk. á mánuði.

Hvernig vinnum við?

01

Skoðum

Kynnum okkur reksturinn og áskoranirnar.

02

Greinum

Finnum hvað skiptir mestu máli.

03

Ákveðum

Mótum skýrar, raunhæfar aðgerðir.

04

Framkvæmum

Hjálpum til við að koma þeim í framkvæmd.

Ekki skýrslur til skrauts. Aðgerðir sem skipta máli.
Um okkur

Af hverju Ráðsnilld?

Að baki Ráðsnilld er áratuga reynsla af uppbyggingu, rekstri og þróun fyrirtækja.

Reynsla úr smásölu, heildsölu, framleiðslu, innflutningi, vöruþróun, markaðssetningu og viðskiptaþróun gefur okkur breiða sýn á reksturinn.

SmásalaHeildsalaFramleiðslaInnflutningurVöruþróunMarkaðssetningViðskiptaþróun
Magnús
Við hugsum eins og eigendur — hvað virkar, hvað borgar sig og hvað skiptir máli.
Magnús Steinþór Pálmarsson · Ráðsnilld

Eigum við að skoða málið?

Tökum stutt spjall.

Oft þarf ekki nema ferskt auga til að sjá nýja leið.

RÁÐSNILLD RÁÐGJÖF
Magnús Steinþór Pálmarsson